10.07.10 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Obafemi Martins til Rubin Kazan (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Obafemi Martins hefur gengið til liðs við rússnesku meistarana í Rubin Kazan en hann kemur til félagsins frá Wolfsburg.
Þessi 25 ára gamli Nígeríumaður gekk í raðir Wolfsburg frá Newcastle fyrir um það bil ári síðan.

Martins fann sig hins vegar ekki í Þýskalandi og sat oft á bekknum en hann skoraði sex mörk í 22 leikjum með Wolfsburg.
,,Nýtt upphaf og nýtt land, þetta er mikil áskorun fyrir mig,\" sagði Martins við BBC.
,,Ég verð að þakka stuðningsmönnum Wolfsburg, fyrrum liðsfélögum mínum þar og ég óska þeim alls hins besta í framtíðinni.\"

Heimild: BBC