Fotbolti.net
10.07.10 - 18:57
Hafliði Breiðfjörð

Garðar Gunnlaugsson til Unterhaching (Staðfest)

Garðar Gunnlaugsson.

Garðar Gunnlaugsson.

Canon

Mynd: Guðmundur Svansson

Garðar Bergmann Gunnlaugsson er genginn til liðs við þýska félagið SpVgg Unterhaching en hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið. Þetta staðfesti umboðsmaður hans við Fótbolta.net kvöld.

Garðar hafði skorað eitt marka liðsins í 4-0 sigri á SSV Ulm í æfingaleik fyrr í dag en áður hafði hann skorað þrennu í 16-1 sigri á áhugamannaliði á þriðjudaginn.
Forráðamenn Unterhaching höfðu eftir það mikinn áhuga á að semja við Garðar og honum var boðinn tveggja ára samningur við félagið sem hann hefur nú skrifað undir.

Hjá þýska félaginu mun hann leika undir stjórn Klaus Augenthaler sem margir muna eftir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.