Fotbolti.net
10.07.24 - 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Thomas Muller hættur að spila með Þýskalandi

Thomas Muller.

Thomas Muller.

Canon

Mynd: EPA

Thomas Muller hefur tekið ákvörðun um að hætta að spila með þýska landsliðinu en Bild segir frá því.

Muller er án efa einn besti leikmaður í sögu þýska landsliðsins.
Muller, sem er 34 ára gamall, spilaði sinn síðasta landsleik þegar Þýskaland tapaði 2-1 gegn Spáni í 8-liða úrslitum Evrópumótsins síðasta föstudag.

Muller spilaði 131 landsleik fyrir Þýskaland og skoraði hann í þeim 45 mörk.

Muller er samningsbundinn Bayern München út næsta tímabil og mun því halda áfram að spila með félagsliði sínu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.