Fotbolti.net
10.08.09 - 15:54
Magnús Már Einarsson

Radoslav Kovac til West Ham (Staðfest)

Radoslav Kovac til West Ham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

West Ham United hefur keypt tékkneska miðjumanninn Radoslav Kovac frá Spartak Moskvu.
Rússneska félagið staðfesti þetta á heimasíðu sinni í dag en sagði ekkert um kaupverð eða samningslengd.

Þessi 29 ára gamli leikmaður hefur leikið með Spartak Moskvu undanfarin fjögur ár en hann hefur nú sagt skilið við félagið.

Kovac þekkir til hjá West Ham þar sem hann var í láni hjá félaginu síðari hluta síðustu leiktíðar.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.