10.08.09 - 22:04
Magnús Már Einarsson
Atli Jónasson í Hvöt á láni (Staðfest) - Fá undanþágu

Atli í leik með Reyni Sandgerði árið 2007.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Hvöt úr 2.deild hefur fengið undanþágu frá KSÍ til að fá Atla Jónasson markvörð KR á láni þrátt fyrir að félagaskiptaglugginn sé lokaður en þetta staðfesti Jens Elvar Sævarsson þjálfari liðsins við Fótbolta.net í kvöld.
Nezir Ohran, markvörður Hvatar, meiddist gegn Víði um helgina og því fékk liðið undanþágu til að fá Atla.
Atli hefur leikið þrjá leiki með KR í sumar en hann hefur verið varamarkvörður liðsins fyrir Stefán Loga Magnússon og síðan fyrir Andre Hansen.
Atli, sem er 21 árs, lék með Haukum á láni í fyrra og fyrir tveimur árum varði hann mark Reynis frá Sandgerði en hann var einnig á láni þá.
Hvöt er í 5.sætinu í annarri deild en liðið mætir Magna annað kvöld og þar ætti Atli að geta leikið sinn fyrsta leik.