10.08.09 - 18:59
Brynjar Ingi Erluson
O\'Shea til Birmingham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Birmingham City hefur gengið frá kaupunum á vængmanninum James O\'Shea frá Galway United.
O\'Shea, sem er 21 árs gamall kantmaður hefur verið að leika með Galway United á Írlandi, en ásamt því er hann í U-21 árs landsliði Írlands.
Hann kemur til með að styrkja Birmingham fyrir komandi tímabil í ensku úrvalsdeildinni, en hann gerir tveggja ára samning við félagið, en ekki er búið að ganga frá verðmiðanum á leikmanninum.
Hann á þann kost að framlengja samning sinn um önnur tvö ár ef hann stendur sig vel hjá klúbbnum sem fær engan draumaleik í fyrstu umferð, þar sem liðið mætir meisturunum frá síðasta tímabili í Manchester United, og það á Old Trafford.

Heimild: Sky