Fotbolti.net
10.09.11 - 12:30
Magnús Már Einarsson

Asamoah Gyan til Al-Ain (Staðfest)

Asamoah Gyan til Al-Ain (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Asamoah Gyan, framherji Sunderland, hefur gengið til liðs við Al-Ain á láni út tímabilið.
Al-Ain sem er frá Sameinuðu arabísku Furstadæmunum óskaði eftir því að kaupa Gyan fyrr í vikunni en á endanum náði félagið samkomulagi við Sunderland um að fá Ganamanninn á láni.

Gyan hefur skorað 11 mörk í 37 leikjum síðan hann kom til Sunderland frá Rennes fyrir ári síðan en hann hefur ekki náð sér á strik síðustu mánuði.

,,Allir sem hafa séð Asamoah spila vita að hann hefur ekki verið eins og hann á að sér að vera undanfarna mánuði,\" sagði Steve Bruce stjóri Sunderland.

,,Asamoah á þrjú ár eftir af samningi sínum og auðvitað er það ósk mín að hann finni sitt gamla form aftur og við sjáum hann í rauðu og hvítu treyjunni á næsta tímabili í sama stuði og hann var þegar við ákváðum að kaupa hann.\"

Heimild: Heimasíða Sunderland

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.