Fotbolti.net
10.10.11 - 10:17
Hafliði Breiðfjörð

Guðlaugur Baldursson ráðinn aðstoðarþjálfari FH (Staðfest)

Guðlaugur Baldursson verður aðstoðarþjálfari FH.

Guðlaugur Baldursson verður aðstoðarþjálfari FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Guðlaugur Baldursson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari FH en frá þessu var greint á vef stuðningsmanna félagsins, FHingar.net, í dag. Hann tekur við starfinu af Jörundi Áka Sveinssyni sem tilkynnt var um fyrir helgi að væri hættur.
Guðlaugur hafði hætt þjálfun ÍR á dögunum eftir fjögur ár með liðið. Hann hafði verið eftirsóttur og samkvæmt heimildum Fótbolta.net ræddi hann við nokkur félög, þar á meðal Fylki en valdi á endanum að fara til FH.

Hjá FH hefur hann unnið samhliða starfinu hjá ÍR undanfarin ár með akademíu á morgnana. Hann mun auk þess að verða aðstoðarþjálfari FH vinna náið með Ingvari Jónssyni þjálfara 2. flokks karla.

Guðlaugur hóf þjálfaraferil sinn í yngri flokkum og þjálfaði til dæmis lið 2. flokks FH árið 2003 sem vann alla leiki sína á tímabilinu. Hann tók við þjálfun ÍBV árið 2006 en hætti síðar sama tímabil. Hann tók svo við liði ÍR árið 2008 og á fyrsta ári vann liðið Reykjavíkurmótið, B-deild Lengjubikarsins og 2. deild karla. Liðið var í fallbaráttu 1. deildar í sumar.

Heimild: FHingar.net

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.