Slúðurpakki úr íslenska boltanum - Númer tvö

KR-ingar hafa áhuga á Jóhannesi Karli.

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Albert Brynjar er orðaður við ÍBV og Val.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Tryggvi Guðmundsson er áfram orðaður við önnur félög.

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Nokkur félög hafa áhuga á Sveinbirni Jónassyni sem var markahæstur í fyrstu deildinni í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Gummi Ben hafnaði ÍR.

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

KR-ingar hafa áhuga á Jóhannesi Karli.

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir
Félög mega ræða strax við leikmenn með samþykki núverandi félags þeirra en leikmenn sem renna út á samningi á árinu eða um áramót má byrja að ræða við beint 16. október og þá þarf ekki að ræða við núverandi félag leikmannsins.
Slúðurpakkinn er einungis til að hafa gaman af og ef menn hafa ábendingar varðandi pakkann eða um slúður hafið þá samband á [email protected].
Sjá einnig:
Íslenskur slúðurpakki (3.október)
Ísland: Lars Lagerback tekur líklega við íslenska landsliðinu. Heimir Hallgrímsson, fráfarandi þjálfari ÍBV, er líklegastur til að vera aðstoðarmaður hans. Einnig hefur verið orðrómur um að Sigurður Ragnar Eyjólfsson verði aðstoðarmaður Lagerback.
KR: Jóhannes Karl Guðjónsson, miðjumaður Huddersfield, er á óskalista KR-inga en hann hefur verið í viðræðum við uppeldisfélag sitt ÍA undanfarnar vikur. KR-ingar eiga ennþá eftir að ná endanlegu samkomulagi við KA um kaup á hægri bakverðinum Hauki Heiðari Haukssyni.
FH: Fimleikafélagið er í leit að miðverði og Ólafur Örn Bjarnason kemur þar sterklega til greina. FH hefur einnig áhuga á Jónasi Þór Næs bakverði Vals og Halldóri Hermanni Jónssyni hjá Fram. Hinn ungi Stefán Þór Pálsson gæti einnig fylgt Guðlaugi Baldurssyni til FH frá ÍR.
ÍBV: Eyjamenn eru að skoða markvarðarmálinn eins og kom fram í síðasta slúðurpakka en sænskur markvörður er á meðal þeirra sem koma til greina. Óskar Pétursson hjá Grindavík er þó efstur á óskalistanum auk þess sem Haraldur Björnsson hjá Val hefur verið nefndur til sögunnar. ÍBV hefur áhuga á Alberti Brynjari Ingasyni framherja Fylkis og Mark Rutgers varnarmanni Víkings. Atli Jóhannsson gæti einnig komið aftur til Eyja eftir nokkurra ára dvöl hjá Stjörnunni og KR. Eyjamenn hafa áhuga á að kaupa Ásgeir Þór Ingólfsson frá Haukum og þá eru Hafsteinn Briem hjá HK og Jón Daði Böðvarsson hjá Selfossi á óskalistanum. Ian Jeffs og Matt Garner verða síðan mögulega lánaðir til Nýja-Sjálands í vetur.
Stjarnan: Markvörðurinn reyndi Gunnar Sigurðsson gæti verið á leið í Stjörnuna en hann er á förum frá FH. Magnús Karl Pétursson, sem var varamarkvörður Stjörnunnar í sumar, gæti lagt hanskana á hilluna vegna meiðsla.
Valur: Á Hlíðarenda er verið að endursemja við leikmenn liðsins og sú vinna gengur vel. Valsmenn hafa áhuga á að fá Albert Brynjar Ingason frá Fylki og Guðmund Steinarsson frá Keflavík en þeir eru báðir samningslausir. Hafsteinn Briem, miðjumaður HK, er einnig á óskalista Valsmanna sem og Sigurður Egill Lárusson hjá Víkingi og Jón Gísli Ström hjá ÍR.
Breiðablik: Blikar hafa áhuga á að fá Jónas Þór Næs hægri bakvörð Vals. Hægri kantmaðurinn ungi Jón Gísli Ström er einnig á óskalista Blika sem vilja semja við Elfar Árna Aðalsteinsson en hann hefur æft með liðinu að undanförnu. Þá er Tryggvi Guðmundsson áfram sterklega orðaður við Blikana.
Fylkir: Í Árbænum er ennþá leitað að eftirmanni Ólafs Þórðarsonar. Ásmundur Arnarsson er mikið orðaður við Fylki sem næsti þjálfari en tvennum sögum fer af því hvort hann sé enn í viðræðum eða hafi hafnað félaginu. Gunnar Guðmundsson, þjálfari U17 ára landsliðsins, er einnig líklegur auk þess sem Páll Einasson, þjálfari Þróttar, og Andri Marteinsson hafa verið orðaðir við stöðuna. Þá hefur heyrst að Fylkismenn vilji fá Heimi Hallgrímsson og vera með Tryggva Guðmundsson sem spilandi aðstoðarþjálfara. Þrátt fyrir að þjálfaramálin séu í óvissu er nóg af leikmannaslúðri en Guðmundur Pétursson, Sveinbjörn Jónasson, Elfar Árni Aðalsteinsson, Tomasz Luba, Guðmundur Steinn Hafsteinsson og Hafsteinn Briem eru allir sagðir vera á óskalista Fylkis.
Keflavík: Þjálfaramálin eru ennþá óljós hjá Keflvíkingum en líklegast þykir að Zoran Daníel Ljubicic og Gunnar Oddsson taki saman við liðinu. Einnig hefur heyrst möguleiki á að Gunnar taki við liðinu með Guðmund Steinarsson sér við hlið. Gunnlaugur Jónsson, þjálfari KA, hefur einnig verið nefndur til sögunnar en hann verður áfram á Akureyri.
Fram: Nicky Deverdics miðjumaður BÍ/Bolungarvíkur hefur verið orðaður við Framara sem og Ásgeir Gunnar Ásgeirsson hjá FH. Halldór Hermann Jónsson er sagður vilja yfirgefa herbúðir Framara en hann er samningslaus.
Grindavík: Heimir Hallgrímsson var efstur á óskalista Grindvíkinga en hann ku hafa gefið félaginu afsvar. Guðjón Þórðarson gæti tekið við Grindavík en Willum Þór Þórsson er einnig sagður hafa áhuga á að taka við liðinu. Grindvíkingar ætla að styrkja leikmannahóp sinn en þeir hafa áhuga á Andra Steini Birgissyni, Elfari Árna Aðalsteinssyni, Hafsteini Briem, Guðmundi Steini Hafsteinssyni og Tomasz Luba.
ÍA: Tomi Ameobi, framherji BÍ/Bolungarvíkur, er á óskalista Skagamanna sem og Björgólfur Takefusa framherji Víkings. Sóknarmaðurinn Pape Mamadou Faye gæti einnig komið frá Leikni sem og og Árni Freyr Guðnason frá ÍR.
Selfoss: Árni Freyr Guðnason er ofarlega á óskalista Selfyssinga. Pape Mamadou Faye hefur einnig áhuga á að ganga í raðir Selfyssinga en óvíst er hvort verði af því.
Þór: Sveinbjörn Jónasson, framherji Þróttar, er á óskalista Þórsara sem vilja einnig halda Gunnari Má Guðmundssyni sem var á láni í sumar.
Víkingur R.: Hörður Sigurjón Bjarnason ætlar að hætta og þá ætlar Sigurður Egill Lárusson að fara frá Víkingi. Ásgeir Börkur Ásgeirsson, miðjumaður Fylkis, gæti verið á leið í Fossvoginn. Víkingar vilja halda Agli Atlasyni en úrvalsdeildarfélög hafa einnig sýnt honum áhuga.
Haukar: Beðið er eftir að Haukar staðfesti ráðningu Ólafs Jóhannessonar sem þjálfara en Sigurbjörn Hreiðarsson verður aðstoðarmaður hans. Guðmundur Sævarsson gæti komið til félagsins frá FH.
Víkingur Ó.: Pólski varnarmaðurinn Tomasz Luba gæti verið á förum en hann hefur áhuga á að fara á höfuðborgarsvæðið.
Fjölnir: Óvíst er með framtíð Viðars Guðjónssonar en hann gæti lagt skóna á hilluna vegna meiðsla og þá gæti fyrirliðinn Gunnar Valur Gunnarsson verið á förum.
BÍ/Bolungarvík: Ekki er ljóst hvort Guðjón Þórðarson muni halda áfram með BÍ/Bolungarvík. Egill Atlason hefur átt í viðræðum við BÍ/Bolungarvík sem og Andri Steinn Birgisson. ÍR-ingarnir ungu Jón Gísli Ström og Stefán Þór Pálsson hafa einnig rætt við Vestfirðinga. Framherjinn sterki Tomi Ameobi hefur síðan sagt BÍ/Bolungarvík að hann muni leika áfram með félaginu ef hann spilar aftur á Íslandi næsta sumar.
KA: Gunnar Valur Gunnarsson fyrirliði Fjölnismanna gæti verið á leið í sitt gamla félag KA.
Þróttur: Ekki er 100% ljóst hvort Páll Einarsson haldi áfram með Þrótt en hann hefur verið orðaður við Fylki. Markvörðurinn reyndi Fjalar Þorgeirsson gæti gengið til liðs við sína gömlu félaga. Erlingur Jack Guðmundsson og Guðfinnur Þórir Ómarsson munu ekki fá nýjan samning og þá er Davíð Logi Gunnarsson að íhuga að leggja skóna á hilluna.
ÍR: Guðmundur Benediktsson og Sigurður Ragnar Eyjólfsson hafa báðir hafnað tilboði um að taka við liði ÍR. Andri Marteinsson, Leifur S. Garðarsson og Sigurður Þórir Þorsteinsson hafa verið orðaðir við stöðuna.
Leiknir R.: Ennþá er óljóst hver mun þjálfa Leiknismenn næsta sumar en Willum Þór Þórsson og Jörundur Áki Sveinsson hafa verið orðaðir við félagið. Sá fyrrnefndi hefur átt í viðræðum við Leiknismenn.
Höttur: Höttur hefur augastað á Davíð Einarssyni, sem er að ganga upp úr 2. flokki KR. Hann skoraði 12 mörk með 2.flokki í sumar.
Tindastóll/Hvöt: Nýliðarnir í fyrstu deildinni vilja ólmir fá Elfar Árna Aðalsteinsson framherja Völsungs.
Dalvík/Reynir: Hreinn Hringsson aðstoðarþjálfari Þórs hefur verið orðaður við þjálfarastöðuna hjá Dalvík/Reyni. Félagið reyndi að fá Sigurbjörn Hreiðarsson en hann er á leið í Hauka. Bróðir hans Jóhann hefur sennilega leikið sinn síðasta leik með Dalvík/Reyni en hann var spilandi aðstoðarþjálfari hjá liðinu á síðasta tímabili.
Þróttur V.: Jón Aðalsteinn Kristjánsson, fráfarandi þjálfari Hamars, gæti tekið við Þrótti.

Albert Brynjar er orðaður við ÍBV og Val.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Tryggvi Guðmundsson er áfram orðaður við önnur félög.

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Nokkur félög hafa áhuga á Sveinbirni Jónassyni sem var markahæstur í fyrstu deildinni í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Gummi Ben hafnaði ÍR.

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir
