Fotbolti.net
10.10.11 - 17:01
Hafliði Breiðfjörð

Ágúst Gylfason tekur við Fjölni (Staðfest)

Ágúst Gylfason sem er hér hægra megin á myndinni tekur við starfi Ásmundar Arnarssonar sem er vinstra megin.

Ágúst Gylfason sem er hér hægra megin á myndinni tekur við starfi Ásmundar Arnarssonar sem er vinstra megin.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Ágúst Gylfason hefur verið ráðinn þjálfari Fjölnis en þetta var staðfest á vef félagsins rétt í þessu. Ágúst tekur við starfinu af Ásmundi Arnarssyni sem er að taka við þjálfun Fylkis. Ágúst hefur verið aðstoðarmaður Ásmundar hjá Fjölni undanfarin ár.
,,Ásmundur Arnarsson hefið ákveðið að taka tilboði Fylkismanna um að þjálfa meistarflokk liðsins og hefur náðst samkomulag milli hans og Knattspyrnudeildar Fjölnis um starfslok hans hjá félaginu,\" sagði í tilkynningu á vef Fjölnis í dag.

Þar er svo tilkynnt um að Ágúst Gylfason verður eftirmaður Ásmundar og hefur gert tveggja ára samning um að þjálfa liðið.

,,Á þessum tímamótum er stjórn knattspyrnudeildar ánægð að geta tilkynnt að náðst hefur samkomulag við Ágúst Gylfason um að hann taki að sér þjálfun meistarflokks karla til næstu tveggja ára,\" segir á vef Fjölnis.

,,Ágúst er Fjölnismönnum að góðu kunnur enda hefur hann verið aðstoðarmaður Ásmundar undanfarin ár auk þess að koma að þjálfun Bjarnarins og 2 flokks karla.\"

,,Undanfarin tvö tímabil hefur verið mikill uppbyggingarfasi hjá félaginu og margir ungir leikmenn fengið dýrmæta reynslu og á því verður byggt og framtíðarmarkið félagsins að sjálfsögð að komast aftur upp á meðal þeirra bestu og festa sig þar í sessi.\"

Heimild: Vefur Fjölnis

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.