10.10.11 - 17:22
Elvar Geir Magnússon
Ásmundur semur við Fylki til þriggja ára (Staðfest)

Ásmundur Arnarsson tekur við Fylki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ásmundur Arnarsson tekur við Fylki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ásmundur Arnarsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks Fylkis en hann mun skrifa undr þriggja ára samning við félagið eftir rúmlega hálftíma í íþróttahúsi Fylkis.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Fylki.

Ásmundur hefur stýrt Fjölni síðan í nóvember 2004 og hefur því lokið sjö leiktíðum með liðið.
Í sumar endaði Fjölnir í fimmta sæti í fyrstu deildinni með 32 stig eftir að hafa verið í toppbaráttu á tímabili.
„Mikið uppbyggingarstarf er í Fylki, þar sem margir ungir leikmenn hafa fengið eldskírn á síðustu misserum, og því eru spennandi tímar framundan . Ásmundi er ætlað að taka við því góða starfi sem unnið var af Ólafi Þórðarsyni síðustu ár, og koma liðinu meðal fremstu liða á komandi árum,\"segir í tilkynningu frá Fylki.