Fotbolti.net
10.12.16 - 13:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Ragnar Bragi: Hugurinn í Pepsi-deildinni

Auglýsing
Ragnar Bragi gekk í gær í raðir Víkings R.

Ragnar Bragi gekk í gær í raðir Víkings R.

Canon

Mynd: Víkingur R.

Víkingur R. styrkti sig til muna í gær þegar samningar náðust við Fylki um félagsskipti Ragnars Braga Sveinssonar úr Fylki yfir í Víking.

Ragnar skrifaði undir þriggja ára samning við Víkinga, en hann segist hafa metnað til þess að spila á meðal þeirra bestu í Pepsi-deildinni.
„Ég hef metnað til að spila á hæsta stigi og fékk það tækifæri með Víking og ákvað að hoppa á það,\" sagði Ragnar í viðtali í útvarpsþættinum Fótboltinu.net á X-inu FM 97,7 nú áðan. „Þetta var ekkert lengi að gerast sem er fínt, maður er í prófum og svona.\"

Fylkir féll niður í Inkasso-deildina eftir erfitt síðasta sumar, en Ragnar segir að síðasta tímabil hafi verið 11 á skalanum 1 upp í 10 hversu erfitt það var.

„Ég verð líklega að henda 11 á þetta. Þetta var rosalega pirrandi og sérstaklega að fara í gegnum þetta með uppeldisklúbbnum og klúbb sem maður var tilbúinn að gera allt fyrir.\"

Ragnar segir að það hafi að sjálfsögðu komið til greina að vera áfram og hjálpa Fylki í Inkasso-deildinni, en hugurinn var samt alltaf í Pepsi-deildinni.

„Það kom auðvitað til greina að vera áfram og taka slaginn, en hugurinn er bara að vera í Pepsi-deildinni og gera eitthvað meira úr því.\"

Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.