11.01.12 - 22:00
Hafliði Breiðfjörð
Dóra María Lárusdóttir í Vitoria de Santao Anta (Staðfest)
Spilar í Brasilíu í þrjá mánuði en fer svo í Val

Dóra María Lárusdóttir er á leið til Brasilíu þar sem hún leikur fyrstu þrjá mánuði ársins en gengur svo til liðs við bikarmeistara Vals að nýju.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dóra María Lárusdóttir er að ganga til liðs við brasilíska liðið Vitoria de Santao Anta og leikur með þeim næstu þrjá mánuðina. Að þeim tíma liðnum mun hún koma heim til Íslands og spila með bikarmeisturum Vals út komandi tímabil en hún hefur þegar náð samkomulagi um það.
Dóra María kemur til brasilíska félagsins frá sænska liðinu Djurgården sem hún var hjá allt síðasta ár en fram að því hafði hún leikið með Val sem er hennar uppeldisfélag.
Þórunn Helga Jónsdóttir liðsfélagi Dóru Maríu í íslenska landsliðinu leikur með Vitoria de Santao Anta. Hjá félaginu mun Dóra María æfa tvisvar á dag og spila með liðinu nánast allt keppnistímabilið í Brasilíu sem er styttra þetta árið og lýkur í apríl.
Dóra María sem er 26 ára gömul hafði spilað í tíu tímabil með Val þegar hún gekk í raðir Djurgården í fyrra, 166 leiki í deild og bikar og skoraði í þeim 88 mörk.
Hún hefur leikið 71 leik fyrir A-landslið Íslands og skorað í þeim 13 mörk og ljóst að hún verður gríðarlegur liðsstyrkur fyrir bikarmeistarana.
Valur hefur áður fengið Laufeyju Björnsdóttur frá Fylki en þegar er ljóst að nokkrir leikmenn fara frá félaginu. Þannig ætlar Embla Grétarsdóttir að hætta í fótbolta, Hólmfríður Magnúsdóttir er á leið til Bandaríkjanna og Hallbera Guðný Gísladóttir til Svíþjóðar. Þá hefur Kristín Ýr Bjarnadóttir hefur skoðað sig um hjá sænsku félagi.