11.05.10 - 08:53
Hafliði Breiðfjörð
McClaren tekur við Wolfsburg (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Steve McClaren er orðinn þjálfari Wolfsburg í Þýskalandi eftir að hafa tekið ákvörðun um að yfirgefa Twente í Hollandi.
McClaren sem er fyrrverandi þjálfari Middlesbrough og enska landsliðsins hefur verið að íhuga möguleika sína eftir að hafa gert Twente að hollenskum meisturum.
Vitað er að félög á Englandi vildu næla í hann en hann ákvað að fara til Þýskalands.
Þar tekur hann við liði Wolfsburg sem vann þýsku Bundesliguna árið 2009 en það gekk ekki eins vel á þessari leiktíð og félagið rak Armin Veh skömmu eftir vetrarfríið.
Lorenz-Gunther Kostner stýrði liðinu tímabunið en náði aðeins að stýra þeim í áttunda sæti deildarinnar. McClaren gerði nú þriggja ára samning.

Heimild: Sky