Fotbolti.net
11.05.10 - 17:42
Alexander Freyr Tamimi

Elísa Ósk Viðarsdóttir í Stjörnuna (Staðfest)

Elísa Ósk Viðarsdóttir er gengin til liðs við Stjörnuna.

Elísa Ósk Viðarsdóttir er gengin til liðs við Stjörnuna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennalið Stjörnunnar hefur fengið liðsstyrk í formi Elísu Ósk Viðarsdóttur en hún kemur til liðsins frá Fjölni.
Elísa hefur spilað með meistaraflokki Fjölnis frá árinu 2001 ef frá er talið árið 2004 sem hún spilaði með Þrótti Reykjavík og árin 2005 og 2007 þar sem hún spilaði ekki knattspyrnu.

Samtals hefur Elísa skorað 22 mörk í 77 meistaraflokksleikjum.

Elísa er annar leikmaðurinn sem Stjarnan fær til sín núna fyrir Íslandsmótið sem er í þann mund að hefjast en Katie McCoy kom einnig til liðsins frá Bandaríkjunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.