11.06.10 - 19:16
Þórður Már Sigfússon
Ingólfur Sigurðsson til Heerenveen (Staðfest)

Ingólfur fagnar marki með KR í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Ingólfur fagnar marki með KR í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Ingólfur Sigurðsson, einn efnilegasti leikmaður landsins, hefur skrifað undir tveggja ára samning við hollenska úrvalsdeildarliðið Heerenveen. Frá þessu er greint á heimasíðu félagsins.
Ingólfur, sem er uppalinn hjá Val, hefur verið á mála hjá KR síðastliðinn tvö ár en hann gengur nú í raðir Heerenveen þar sem hann dvaldi um nokkurra mánaða skeið tímabilið 2007-2008. Hann lék nokkra leiki og skoraði eitt mark fyrir KR í Pepsi-deildinni á síðasta keppnistímabili en hann fékk lítið sem ekkert fengið að spreyta sig í sumar.
Ákvæði er í samningi Ingólfs við Heerenveen að standi hann undir væntingum er möguleiki á því að hann geti framlengt samning sinn við félagið um eitt ár.
Ákvæði er í samningi Ingólfs við Heerenveen að standi hann undir væntingum er möguleiki á því að hann geti framlengt samning sinn við félagið um eitt ár.
Heimild: Heimasíða Heerenveen
