Fotbolti.net
11.06.10 - 23:07
Hafliði Breiðfjörð

Ólafur og Elís taka við kvennaliði Stjörnunnar (Staðfest)

Ólafur Guðbjörnsson.

Ólafur Guðbjörnsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Kvennaboltinn
Ólafur Þór Guðbjörnsson þjálfari U19 ára landsliðs kvenna og Elís Þór Rafnsson eru næstu þjálfarar kvennaliðs Stjörnunnar en þetta var staðfest í tilkynningu frá félaginu í kvöld.
Þeir taka við starfinu af Anedrés Ellert Ólafssyni sem hætti óvænt með liðið á síðasta föstudag af persónulegum ástæðum. Ólafur stýrði liðinu í leiknum gegn Fylki á þriðjudag.

Yfirlýsing Stjörnunnar:
Knattspyrnudeild Stjörnunnar undirritaði í kvöld samning við Ólaf Þór Guðbjörnsson og Elís Þór Rafnsson um að þeir þjálfi mfl. kvenna til loka yfirstandandi keppnistímabils.

Þeir Ólafur Þór og Elís Þór taka við góðu búi af Andrési Ellert Ólafssyni sem þurfti að láta af störfum sem þjálfari af persónulegum ástæðum. Leikmannahópur meistarflokks kvenna hefur sýnt í verki aðdáunarverðan styrk og sigurvilja í gegnum þær breytingar sem yfir hann hafa dunið og staðfest að liðið á heima í hópi þeirra bestu. Stjarnan væntir mikils af starfi þeirra Ólafs Þórs og Elísar Þórs og býður þá velkomna til félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.