Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fim 11. ágúst 2022 23:51
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Viðtal
Arnar í Poznan: Nokkrir strákar hjá okkur sem eru á þessu stigi
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga, fagnar í kvöld.
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga, fagnar í kvöld.
Mynd: Adam Ciereszko
Danijel Dejan Djuric fagnar marki sínu.
Danijel Dejan Djuric fagnar marki sínu.
Mynd: Adam Ciereszko
Víkingar elta Kristoffer Velde, norskan kantmann Lech.
Víkingar elta Kristoffer Velde, norskan kantmann Lech.
Mynd: Adam Ciereszko
Ingvar átti stórleik.
Ingvar átti stórleik.
Mynd: Adam Ciereszko
Lech fagnar marki í kvöld.
Lech fagnar marki í kvöld.
Mynd: Adam Ciereszko
Rauða spjaldið á loft.
Rauða spjaldið á loft.
Mynd: Adam Ciereszko
Arnar þakkar þjálfara Lech fyrir leikinn.
Arnar þakkar þjálfara Lech fyrir leikinn.
Mynd: Adam Ciereszko
Á hliðarlínunni í kvöld.
Á hliðarlínunni í kvöld.
Mynd: Adam Ciereszko
Leikmenn Víkinga svekktir eftir leik.
Leikmenn Víkinga svekktir eftir leik.
Mynd: Adam Ciereszko
Næsti leikur Víkinga er stórleikur gegn Breiðabliki á mánudag.
Næsti leikur Víkinga er stórleikur gegn Breiðabliki á mánudag.
Mynd: Adam Ciereszko
„Blendnar tilfinningar sko," sagði Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, í samtali við Fótbolta.net eftir tap gegn pólsku meisturunum í Lech Poznan í forkeppni Sambandsdeildarinnar í kvöld.

Aldrei hefur íslenskt karlalið verið í meiri möguleika á því að komast í riðlakeppni í Evrópu. Niðurstaðan er afar svekkjandi, en Víkingar geta að mörgu leyti gengið stoltir frá borði.

„Við byrjuðum leikinn mjög vel og fengum tvö þokkaleg færi til að skora. Strúkturinnn var að virka mjög vel. Svo fáum við tvö ódýr mörk á okkur. Það hefur verið okkar akkilesarhæll í sumar, að gefa ódýr mörk."

Jöfnuðu á lokasekúndu leiksins
Eftir mörkin, þá var Lech Poznan sterkari aðilinn. Víkingar fóru að færa sig framar á völlinn þegar leið á leikinn því þeir þurftu að sækja eitt mark til að jafna einvígið. Lech fékk fjöldann allan af færum til að ganga frá einvíginu en Ingvar Jónsson var magnaður í marki Víkinga. Á lokasekúndu leiksins jafnaði svo varamaðurinn Danijel Dejan Djuric. Með gömlu reglunum um útivallarmörk þá hefðu Víkingar tryggt sig áfram með því marki.

„Þetta var erfitt, en við gáfumst ekki upp. Við lifðum á lyginni seinasta korterið, þeir hefðu getað gert þrjú eða fleiri mörk. Við höngum inni í þessu og gerðum frábært mark í lokin. Þá var þetta komið í framlengingu."

„Við vorum farnir að taka sénsa, þetta er útsláttarkeppni og það skiptir ekki máli hvort við töpum 4-0 eða 6-0. Við fórum að taka sénsa. Við lifðum á lyginni en svo náðum við einni frábærri sókn. Þetta var geggjuð tilfinning og geggjað fyrir Danijel.

Snemma í framlengingunni fengu Víkingar svo á sig markið sem skildi að í einvíginu.

„Því miður fengum við aftur á okkur full ódýrt mark. Við vorum strax byrjaðir að elta leikinn aftur. Svo var þetta enn erfiðara eftir að Júlli var rekinn út af; þá var þetta eiginlega búið, menn gáfust ekki upp en það var mjög erfitt eftir það," segir Arnar.

„Þetta var mikill tilfinningarússíbani. Tilfinningarnar voru hátt uppi eftir dramatískar lokasekúndur. Það hefði verið gaman að halda út aðeins lengur því maður fann að völlurinn var farinn að ókyrrast mikið. Stuðningsfólk trúði ekki sínum eigin augum. Í stöðunni 3-1 áttum við enn fína möguleika en brottvísunin var banabiti fyrir okkur. Við vorum ekki alveg með orkustigið til að klára þetta tíu á móti ellefu."

Breytir í þriggja hafsenta kerfi
Það vakti nokkra athygli að Arnar skuli breyta í þriggja hafsenta kerfi fyrir þennan leik. Viktor Örlygur Andrason lék á meðal miðvarða þegar liðið var að verjast. Af hverju var sú breyting gerð?

„Þú kemur á svona völl og spilar á móti svona liði sem er bara betri í fótbolta. Þetta er ekkert flókið," segir Arnar. Þeir eru með betri tekníska leikmenn og eru líka með áhorfendur á bakinu. Við erum búnir að spila þetta kerfi mjög vel á móti Malmö og Levadia fyrr í Evrópukeppninni."

„Það kom þeim líka á óvart, þetta snýst um það - að koma hinu liðinu á óvart. Ég er mjög ánægður hvernig margt í þessu kerfi gekk upp. Byrjunin var gríðarlega sterk. Á þessu stigi máttu bara ekki gera mistök, þér verður refsað. Við gerum tvö og fengum 2-0 í andlitið. Þetta er annað 'level' og við lærum mikið á þessu."

„Þessir strákar sparka boltanum aðeins fastar, eru með aðeins nákvæmara 'touch' ... það eru nokkrir strákar hjá okkur sem eru á þessu stigi hvað varðar fótboltaleg gæði. Við erum klárlega með hjartað og karakterinn í lagi, en það vantar töluvert upp á er varðar fótboltaleg gæði hjá nokkrum. Það er eðlilegt, annars væru þeir ekki að spila á Íslandi."

Kjaftæði þetta rauða spjald
Það má segja að rauða spjaldið sem Júlíus Magnússon, fyrirliða Víkinga, fær í seinni hálfleik framlengingarinnar geri út um einvígið. Bæði spjöldin sem hann fær voru vægast sagt vafasöm en það var sérstaklega mikil reiði með seinna spjaldið á samfélagsmiðlum.

„Þetta var náttúrulega bara 'bullshit'," segir Arnar er hann er spurður út í rauða spjaldið og er erfitt að taka ekki undir með honum - algjört kjaftæði.

„Það er eins og gengur og gerist. Þetta er búið að vera þannig sumar einhvern veginn. Þetta var hrikalega svekkjandi. Þetta er eiginlega saga okkar í Evrópukeppninni, við erum búnir að fá mikið af rauðum spjöldum - 'soft' rauðum spjöldum. Dómarinn gerði klárlega mistök, hann kom inn í búningsklefann og tók í höndina á leikmönnum eftir leik."

„Það er klárt mál samt að betra liðið fór áfram, en það er ef og hefði í þessu. Til þess að komast áfram hefðum við kannski þurft að setja eitt mark í viðbót í Reykjavík. Í svona einvígum, þá lærir þú af þessu. Þetta er búið að vera ævintýri fyrir okkur og góð reynsla. Að mínu mati höfum við stigið verulega upp sem lið. Margir leikmenn hafa stigið upp líka."

„Við erum með sterka pósta sem vantar. Halli er búinn að vera meiddur og Niko líka. Það kemur maður í manns stað og ég er gríðarlega ánægður með það."

Einvígið var skemmtilegt og það var lítið á milli í þessu, en Arnar segir að betra liðið hafi farið áfram.

„Þetta var skemmtilegt einvígi. Heilt yfir þá fór betra liðið áfram, en við gáfum þeim svo sannarlega leik."

Hvað þurfum við að gera?
Víkingar voru ekki langt frá þessu núna, en það hefur aldrei gerst að íslenskt karlalið fari alla leið í riðlakeppnina í Evrópu. Hvað þarf að gerast svo að íslenskt félagslið skrifi söguna?

„Það er alveg augljóst að það þarf meira fjármagn. Þú getur ekki keppt á þessu stigi án þess að vera með meira fjármagn, það er ekki hægt. Við erum að gera ótrúlega hluti, Breiðablik og Víkingur, í þessum Evrópukeppnum. Það verður að vera sterkur kjarni sem er ekki bara með hjarta og hlaupagetu, þeir verða að vera með allan pakkann," segir Arnar.

„Ég held að Breiðablik og við höfum komist að því að þegar þú lendir á svona stigi gegn félögum sem eru með 30 sinnum meira fjármagn en við að þá verður það erfitt, þá fara litlu smáatriðin að skipta svo miklu máli. Við stóðum okkur vel - bæði lið - þetta árið. Til þess að komast lengra þá þarf meira fjármagn í allt - infrastrúktur, fleiri greinendur og allan pakkann. Við erum að nýta fjármagnið sem við höfum núna gríðarlega vel."

„Bæði félög eru líka að lenda í því að selja reglulega og það er mikil leikmannavelta, sem er áskorun og líka gaman. En auðvitað viltu halda þínu liði í 2-3 ár, þetta er ekkert flókið."

Það eru möguleikar í þessu eins og sást í ár, ef liðin frá Íslandi eru heppin með drátt.

„Við getum klárlega séð íslenskt lið í riðlakeppni samt. Lið sem verður meistari og kemst í gegnum fyrstu umferðina í Meistaradeildinni, þá ertu kominn með fallhlíf út um allt. Þá ferðu í Evrópudeildina og ert öruggur með umspil í Sambandsdeildinni. En þegar þú ert í fjórðu umferð þá ertu ekki að fara að fá auðveldan drátt. Þetta er áskorun og er virkilega gaman," segir Arnar og bætir við:

„Auðvitað eigum við að stefna á þetta. Ég er ekki að tala um að við þurfum einhverja milljarða, við þurfum bara aðeins meiri pening sem við getum nýtt vel til að við eigum séns til að komast alla leið."

Stórleikur á mánudag
Víkingar ferðast heim á morgun, þeir taka rútu til Berlín og fljúga þaðan heim til Íslands. Næsti leikur er svo algjör toppbaráttuslagur gegn Breiðabliki á mánudag. Hefur Arnar áhyggjur af þreytu fyrir þann leik?

„Ég hef engar áhyggjur af þreytu. Þetta verður það mikill stórleikur," segir hann. „Það er líka annar stórleikur á fimmtudaginn gegn KR í bikarnum."

„Við sleikjum sárin í kvöld, ferðumst heim á morgun og mætum galvaskir til leiks á mánudaginn. Bæði lið eru að ferðast, bæði lið eru búin að spila erfiða törn núna. Þetta verður bara gaman."

Þetta tókst ekki alveg núna, en líkt og fyrr segir þá er margt sem er hægt að taka jákvætt úr þessu. Þessi tvö lið - Breiðablik og Víkingur - eru að taka skref fram á við og það verður áhugavert að sjá hvað verður í framhaldinu. Þessi lið eiga - með heppni og góðum ákvörðunum - alveg möguleika á næsta ári.

Það er jú alltaf næsta ár.
Athugasemdir
banner