11.10.11 - 17:37
Hafliði Breiðfjörð
Zoran Daníel Ljubicic tekur við Keflavík (Staðfest)

Zoran skrifar undir samninginn í Nettó í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Zoran Daníel Ljubicic hefur verið ráðinn þjálfari Keflavíkur en þetta var tilkynnt á fréttamannafundi í Nettó í Keflavík rétt í þessu.
Ekki hefur enn verið ákveðið hver verður honum til aðstoðar en félagið hefur boðið Gunnari Odssyni stöðuna. Gunnar liggur hinsvegar undir feldi og íhugar hvort hann eigi að taka boðinu.

Zoran Daníel hefur verið þjálfari 2. flokks karla hjá Keflavík og náði góðum árangri með það lið sem vann sig upp um deild og varð bikarmeistari í haust.
Hann tekur við starfinu af Willum Þór Þórssyni sem hefur stýrt Keflavíkurliðinu undanfarin tvö ár en félagið tillkynnti fyrir viku síðan að ekki yrði endurnýjaður samningur við hann.
Zoran Daníel Ljubicic er 47 ára gamall. Hann spilaði með Keflavík á fimm ára tímabili frá 1999-2004 og varð tvisvar bikarmeistari með liðinu. Hann fór þaðan til Völsungs og var þar spilandi þjálfari í 1. deildinni árið 2005 en það var hans fyrsta þjálfarastarf.