Fotbolti.net
12.01.12 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Valorie O\'Brien til Selfoss (Staðfest)

Valorie O\'Brien til Selfoss (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Davíð Georgsson

Kvennaboltinn
Kvennalið Selfoss hefur fengið góðan styrk fyrir komandi tímabil, en Valorie O\'Brien hefur samið við félagið fram yfir sumar. Þetta kom fram á vef Sunnlenska.is.
O\'Brien, sem er 22 ára gömul er miðjumaður að upplagi og var að klára nám við háskólann í Suður-Flórida en hún hefur spilað með skólanum síðustu fjögur ár og verið fyrirliði þess að auki.

Sunnlenska.is greindi frá þessu í gær og sagði jafnframt frá því að Valorie hafi fengið tilboð frá félögum í bæði Frakklandi og Þýskalandi en hafi ákveðið að velja að spila í Pepsi-deildinni með Selfyssingum í sumar.

Hún kemur til félagsins í mars, en vefurinn greinir einnig frá því að fleira sé í vændum hjá kvennaliðinu og má búast við því að liðið næli í fleiri leikmenn fyrir tímabilið.

Heimild: Sunnlenska.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.