12.01.12 - 10:07
Magnús Már Einarsson
Robbie Keane til Aston Villa (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Aston Villa hefur fengið Robbie Keane framherja LA Galaxy á láni næstu vikurnar.
Keane mun leika með Aston Villa til 25. febrúar en þá fer hann aftur til Bandaríkjanna til að undirbúa sig fyrir keppni í MLS-deildinni.

Keane vill með þessum samningi halda sér í sem bestu formi en hann verður í eldlínunni með Írum á EM í sumar.
Þessi 31 árs gamli leikmaður yfirgaf Tottenham í ágúst síðastliðnum til að ganga í raðir LA Galaxy en hann fær nú tækifæri til að láta ljós sitt skína að nýju í ensku úrvalsdeildinni.
Samtals hefur Keane skorað 123 mörk í ensku úrvalsdeildinni á ferli sínum með Tottenham, Liverpool, Leeds, Coventry og West Ham.