Fotbolti.net
12.01.12 - 20:20
Ívan Guðjón Baldursson

Balazs Dzsudzsak til Dynamo Moscow (Staðfest)

Balazs Dzsudzsak í leik með PSV Eindhoven.

Balazs Dzsudzsak í leik með PSV Eindhoven.

Canon

Mynd: Getty Images

Balazs Dzsudzsak er kominn til rússnesska úrvalsdeildarfélagsins Dynamo Moscow, sem eins og nafnið gefur til kynna er staðsett í höfuðborg Rússlands, Moskvu.

Dzsudzsak skrifaði undir fjögurra ára samning við félagið og kostaði 15 milljónir evra (12.5 milljónir punda), en hann kemur frá Anzhi Makhachkala.
,,Í dag samþykkti stjórnin kaup á Balazs Dzsudzsak frá Anzhi og skrifaði hann undir fjögurra ára samning,\" stendur á vefsíðu Dynamo (www.fcdynamo.ru).

Dzsudzsak er annar leikmaðurinn sem fer frá Anzhi í viðskiptaglugganum eftir að brasilíski framherjinn Diego Tardelli var seldur til Al-Gharafa í Qatar fyrir 7 milljónir evra. Dzsudzsak er ungverskur og lék með PSV Eindhoven áður en Anzhi keypti hann síðasta sumar.

Anzhi er talið eitt ríkasta félagslið í heiminum í dag en eigandi þess er Suleiman Kerimov, 118.ríkasti maður heims samkvæmt Forbes Magazine.

Anzhi er að losa sig við leikmenn vegna þess að liðið er með of mikið af útlendingum innanborðs og reglur um takmarkanir útlendinga í rússnesskum liðum verða hertar á næstu leiktíð. Frægasti leikmaður liðsins er eflaust Samuel Eto\'o, sem er einn launahæsti leikmaður heims.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.