Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 12. mars 2024 14:08
Elvar Geir Magnússon
Benítez rekinn frá Celta Vigo (Staðfest)
Rafa Benítez.
Rafa Benítez.
Mynd: EPA
Spænska félagið Celta Vigo hefur sagt Rafael Benítez upp en liðið er aðeins tveimur stigum fyrir ofan fallsæti þegar tíu umferðir eru eftir.

Síðasti leikur Celta Vigo undir stjórn Benítez var 4-0 tap gegn Real Madrid.

Celta hefur aðeins unnið fimm deildarleiki allt tímabilið.

Spænskir fjölmiðlar segja að Benítez hafi lent í ósætti við leikmenn varðandi leikstíl.

Benítez hefur á stjóraferli sínum meðal annars stýrt Valencia, Liverpool, Inter, Napoli og Real Madrid.

Hann tók við Celta síðasta sumar en þetta var fyrsta stjórastarf hans síðan hann var rekinn frá Everton í janúar 2022.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 33 26 6 1 71 22 +49 84
2 Barcelona 32 21 7 4 64 37 +27 70
3 Girona 32 21 5 6 67 40 +27 68
4 Atletico Madrid 32 19 4 9 59 38 +21 61
5 Athletic 32 16 10 6 52 30 +22 58
6 Real Sociedad 33 13 12 8 46 35 +11 51
7 Betis 32 12 12 8 40 38 +2 48
8 Valencia 32 13 8 11 35 34 +1 47
9 Villarreal 32 11 9 12 51 55 -4 42
10 Getafe 32 9 13 10 38 44 -6 40
11 Osasuna 32 11 6 15 37 46 -9 39
12 Sevilla 32 9 10 13 41 45 -4 37
13 Las Palmas 32 10 7 15 30 39 -9 37
14 Alaves 32 9 8 15 28 38 -10 35
15 Vallecano 32 7 13 12 27 39 -12 34
16 Mallorca 32 6 13 13 26 38 -12 31
17 Celta 32 7 10 15 37 47 -10 31
18 Cadiz 32 4 13 15 22 45 -23 25
19 Granada CF 32 3 9 20 33 61 -28 18
20 Almeria 32 1 11 20 31 64 -33 14
Athugasemdir
banner
banner