12.05.10 - 16:22
Magnús Már Einarsson
Greg Ross í Val (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir

Valur hefur fengið skoska varnarmanninn Greg Ross til liðs við sig en hann kemur til félagsins frá Dunfermline.
Ross, sem varð 23 ára fyrr í mánuðinum, hefur skorað þrjú mörk í 103 leikjum með Dunfermline en hann var leystur undan samningi hjá félaginu 2.maí síðastliðinn.
Ross var á sínum tíma yngsti leikmaðurinn til að spila leik í byrjunarliði Dunfermline í skosku úrvalsdeildinni en hann var þá 17 ára og 202 daga.
Í september 2008 fór Ross til þriðju deildarliðsins Cowdenbeath en hann var þá að jafna sig eftir að hafa farið í tvær aðgerðir á hné á rúmu einu ári.
Ross er kominn með leikheimild með Val og hann getur því leikið með liðinu gegn ÍBV í Pepsi-deildinni á laugardag.
Í öðrum fréttum af Val má nefna að Fitim Morina, ungur leikmaður úr öðrum flokki, er kominn aftur til félagsins eftir að hafa leikið í Hollandi undanfarnar mánuði.