Fotbolti.net
12.05.10 - 19:05
Magnús Már Einarsson

Andri Valur í Völsung (Staðfest)

Andri Valur í Völsung (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Völsungur hefur fengið framherjann Andra Val Ívarsson til liðs við sig frá Fjölni.
Andri Valur er uppalinn á Húsavík og hann lék í mörg ár með Völsungi áður en hann gekk til liðs við Val árið 2006.

Andri Valur, sem verður þrítugur á þessu ári, fékk fá tækifæri hjá Val og hann var í láni hjá Völsungi árið 2006 og hjá Fjarðabyggð sumarið 2007.

Undanfarin tvö ár hefur Andri Valur síðan leikið með Fjölni en hann hefur þó ekki æft með liðinu í vetur. Í fyrra skoraði Andri Valur þrjú mörk í tólf leikjum í Pepsi-deildinni.

Andri Valur skoraði mikið af mörkum með Völsungi á sínum tíma en hann skoraði meðal annars sjö mörk í fyrstu deildinni 2005 og fimm mörk í átta leikjum í annarri deildinni ári síðar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.