12.07.10 - 07:00
Magnús Már Einarsson
Papa Bouba Diop til AEK Aþenu (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Gríska félagið AEK Aþena hefur gengið frá kaupum á miðjumanninum Papa Bouba Diop.
Þessi 32 ára gamli leikmaður skrifaði í gær undir tveggja ára samning við AEK en hann kemur til félagsins frá Portsmouth.
Arnar Grétarsson er yfirmaður knattspyrnumála hjá gríska félaginu og hann kom að samningaviðræðunum.
,,Ég var hissa á að sjá stuðningsmennina sem tóku á móti mér á flugvellinum,\" sagði Diop eftir að hann skrifaði undir.
Bouba Diop kom til Portsmouth frá Fulham árið 2007 og lék alls 72 leiki á tíma sínum hjá félaginu.

Heimild: Sporting Life