Fotbolti.net
12.07.10 - 19:15
Kjartan Már Gunnarsson

Kristófer hættur með Reyni - Kjartan Másson tekur við (Staðfest)

Kjartan Másson er kominn í fótboltann að nýju.

Kjartan Másson er kominn í fótboltann að nýju.

Canon

Mynd: Kjartan Már Gunnarsson

Nú í dag gekk Reynir frá Sandgerði frá samningi við Kjartan Másson um að taka við þjálfun liðsins. Kjartan sem er einn reyndasti og jafnframt litríkasti þjálfari íslenskrar knattspyrnu tekur við af Kristófer Skúla Sigurgeirssyni sem komst í dag að samkomulagi við félagið um að láta af störfum.
Reynismenn hafa ekki verið að ríða feitum hesti í 2. deildinni í ár og sitja í 9. sæti með ellefu stig eftir 10 leiki. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Kjartan þjálfar Reyni Sandgerði en hann fór einnig með stjórnartaumana þar í upphafi áttunda áratugarins.

Kjartan hefur ekki þjálfað í átta ár og því kemur þessi ráðning því svolítið á óvart. Hann hefur komið víða við á löngum ferli, hann byrjaði ferilinn í heimabæ sínum, Vestmannaeyjum þar sem hann gerði ÍBV meðal annars að íslands- og bikarmeisturum.

Ásamt því hefur hann meðal annars þjálfað í Færeyjum, Víði Garði, Grindavík, Víking Reykjavík, HK og Keflavík.

Í yfirlýsingu frá Reyni kom fram að Kjartani til aðstoðar verði Óli Ívar Jónsson og Sinisa Valdimar Kekic sem einnig eru leikmenn liðsins.


Yfirlýsingin frá Reyni
Knattspyrnudeild Reynis og Kristófer Sigurgeirsson hafa komist að samkomulagi um að hann láti af störfum nú þegar. Óska þeir honum velfarnaðar.

Jafnframt þessu hefur Kjartan Másson, hin gamla kempa verið ráðinn sem þjálfari og til aðstoðar Óli Ívar Jónsson og Sinisa Valdimar Kekic.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.