Fotbolti.net
12.07.10 - 17:26
Magnús Már Einarsson

Solano og Harper til Hull (Staðfest)

Nolberto Solano.

Nolberto Solano.

Canon

Mynd: Getty Images

Hull City hefur fengið miðjumennina James Harper og Nolberto Solano til liðs við sig.
Harper, sem er 29 ára, var látinn fara frá Sheffield United í lok síðasta tímabils og á sama tíma fór Solano frá Leicester.

Solano, sem er 35 ára, lék áður með Newcastle, Aston Villa og West Ham en hann fylgir knattspyrnustjóranum Nigel Pearson frá Leicester til Hull.

Harper lék með Reading frá 2001-2010 og eftir stutt stopp hjá Sheffield United hefur hann núna ákveðið að ganga til liðs við Hull.

,, Nobby (Solano) gerir eins árs samning og James tveggja ára en þeir eru á launum sem skaða fjárhaginn ekki of mikið,\" sagði Adam Pearson yfirmaður knattspyrnumála hjá Hull.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.