Fotbolti.net
12.07.10 - 20:23
Alexander Freyr Tamimi

Sveinbjörn Jónasson í Fjarðabyggð (Staðfest)

Sveinbjörn er snúinn aftur í lið Fjarðabyggðar.

Sveinbjörn er snúinn aftur í lið Fjarðabyggðar.

Canon

Mynd: Austurglugginn/Gunnar

Sveinbjörn Jónasson skrifaði í dag undir samning við Fjarðabyggð og mun spila með liðinu út árið 2011. Þetta kom fram á opinberri heimasíðu félagsins.
Sveinbjörn spilaði með Fjarðabyggð árið 2008 og skoraði það sumarið 13 mörk í 22 leikjum og varð þriðji markahæstur í 1. deild. Þetta er því gríðarlegur liðsstyrkur fyrir lið Fjarðarbyggðar.

Í upphafi árs 2009 gekk Sveinbjörn til liðs við úrvalsdeildarlið Grindavíkur, spilaði með þeim 13 leiki og gerði eitt mark.

Sveinbjörn spilaði síðan tvo leiki með Grindavík í sumar áður en hann tók sér frí frá fótbolta. Hann er nú snúinn aftur og mun líkast til reynast liðinu vel.

Heimild: Heimasíða Fjarðabyggðar

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.