12.08.09 - 16:29
Hafliði Breiðfjörð
Aston Villa fær 34 ára gamlan markvörð (Staðfest)

Andy Marshall.

Mynd: Getty Images

Andy Marshall.

Mynd: Getty Images
Aston Villa hefur gengið frá samningum við markvörðinn Andy Marshall sem er 34 ára gamall.
Marshall á að baki 4 leiki með U21 árs landsliði Englands.
Hann gerir eins árs samning við Aston Villa en hafði áður verið í þrjú ár hjá Coventry City.
Hann hóf feril sinn hjá Norwich árið 1993 og lék meðal annars með Ipswich Town og Millwall síðar.
Hann yfirgaf Coventry í lok síðustu leiktíðar og mun nú berjast um varamarkmannsstöðuna hjá Aston Villa við Bandaríkjamanninn Brad Guzan en aðalmarkvörður liðsins er Brad Friedel sem einnig er Bandaríkjamaður.

Heimild: BBC