Fotbolti.net
12.08.09 - 16:47
Hafliði Breiðfjörð

Lee Cattermole til Sunderland (Staðfest)

Lee Cattermole í leik með Middlesbrough.

Lee Cattermole í leik með Middlesbrough.

Canon

Mynd: Getty Images

Lee Cattermole miðjumaður U21 árs landsliðs England er genginn í raðir Sunderland frá Wigan en kaupverðið var 6 milljónir punda. Þetta gerist tveimur mánuðum eftir að Steve Bruce knattspyrnustjóri Sunderland kom til félagsins frá Wigan.
Cattermole sem er 21 árs gamal skrifaði undir fjögurra ára samning við Sunderland og er fimmtu kaup félagsins síðan hann kom í júní.

Wigan græddi 2,5 miljónir punda á leikmanninum sem átti flestar tæklingra, 167 talsins á síðustu leiktíð sem var met en hann hafði komið frá Middlesbrough í júlí 2008.

Sunderland hefur nú eytt 24,5 milljónum punda í Cattermole, Darren Bent, Lorik Cana, Fraizer Campbell og Paulo da Silva en liðið endaði í 16. sæti deildarinnar á síðustu leiktíð.

Heimild: AP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.