Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 12. ágúst 2020 22:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Stutt á milli í fótbolta
Thomas Tuchel.
Thomas Tuchel.
Mynd: Getty Images
Þýski þjálfarinn Thomas Tuchel var líklega í hættu á að missa starf sitt í kvöld þegar PSG vann Atalanta 2-1 í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Staðan var lengst af 1-0 fyrir Atalanta en seint í leiknum skoraði PSG svo tvö mörk og tryggði sér sigurinn.

Tuchel var líflegur á hliðarlínunni í kvöld þar sem hann sat ofan á kæliboxi allan leikinn, með spelku á fætinum.

Þjóðverjinn, sem hefur stýrt PSG frá 2018, var orðinn ansi pirraður á lélegri færanýtingu sinna drengja undir lok leiksins. Hér að neðan má sjá skemmtilegt myndband sem sýnir það hversu stutt er á milli í fótbolta. Eina stundina er Tuchel pirraður og þá næstu öskrar hann af gleði eftir sigurmark Parísarliðsins.


Athugasemdir
banner
banner