Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 12. ágúst 2022 11:32
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Þungavigtin 
Arnar segist hafa „hagað sé gríðarlega illa“ - Rak dómarann úr KA-heimilinu
Arnar Grétarsson og Ríkharð Óskar Guðnason.
Arnar Grétarsson og Ríkharð Óskar Guðnason.
Mynd: Fótbolti.net - Raggi Óla
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
„Það er búið að gusta vel um okkur og sérstaklega um mig. Það verður að segjast alveg eins og er að ég á allan þátt í því. Eftir rauða spjaldið hagaði ég mér á alveg gjörsamlega óásættanlegan máta og sprakk," segir Arnar Grétarsson, þjálfari KA, í viðtali í hlaðvarpsþættinum Þungavigtin.

Arnar var í vikunni dæmdur í fimm leikja bann af aganefnd KSÍ. Hann fékk sjálfkrafa tveggja leikja bann fyrir sitt annað rauða spjald í 0-1 tapi gegn KR. Refsingin var þyngd um þrjá aukaleiki vegna hegðunar hans.

„Ég sé gríðarlega eftir því og nota tækifærið hér og nú og bið þessa einstaklinga innilega afsökunar vegna þess að það er ekkert sem afsakar það, sama hvort dómarar eru mjög slakir eða ekki, að þú missir þig svona. Ég missti bara hausinn, hagaði mér gríðarlega illa og kom sjálfum mér, leikmönnum og félaginu í slæma stöðu og sé fyrst og fremst gríðarlega eftir því."

Arnar var bálreiður og hrópaði 'Fokking fáviti' í tvígang að fjórða dómaranum, Sveini Arnarssyni, eftir rauða spjaldið. Morguninn eftir leikinn hitti Arnar svo Svein, sem er búsettur á Akureyri, í KA-heimilinu. Arnari var ekki runnin reiðin.

„Ég labbaði framhjá skrifstofu sem er við hliðina á minni og þar sé ég fjórða dómara vera að rölta inn í herbergi þar sem handboltaþjálfararnir eru. Þar er hann bara með kaffibolla og enginn annar inni. Ég var ekki enn búinn að jafna mig á þessu nokkrum klukkutímum seinna og vísaði honum út. Ég held ég hafi ekki notað einhver ljót orð en auðvitað var mér enn heitt í hamsi," segir Arnar.

Arnar setur spurningamerki við þá ákvörðun Sveins að hafa í ljósi aðstæðna mætt í KA-heimilið daginn eftir en Sveinn var að mæta með son sinn á fótboltaæfingu.

„Eina sem ég gerði var að vísa honum út og spurði hann hvort hann hefði ekki átt að halda sig fjarri og gefa manni allavega dag til að jafna sig á hlutunum. Ég er hundrað prósent viss á því að ef hann hefði mætt tveimur dögum seinna hefði ég beðist afsökunar á mínu framferði og rætt atvikið," segir Arnar í samtali við Ríkharð Óskar Guðnason í Þungavigtinni.

Arnar segist ætla að biðja Svein afsökunar næst þegar leiðir þeirra liggja saman. KA hefur áfrýjað leikbanni Arnars.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner