Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 12. september 2019 16:15
Magnús Már Einarsson
Sjö lið í Pepsi Max með meira en 1000 áhorfendur að meðaltali
Flestir áhorfendur hafa verið á heimaleikjum KR í sumar.
Flestir áhorfendur hafa verið á heimaleikjum KR í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þegar þremur umferðum er ólokið í Pepsi Max deild karla hafa 120.242 áhorfendur mætt á leikina 114 sem leiknir hafa verið, eða 1.055 að meðaltali.

Sjö af tólf liðum deildarinnar eru með yfir eitt þúsund áhorfendur að meðaltali á sínum heimaleikjum, og Víkingur er reyndar býsna nærri því líka, með 999 áhorfendur að meðaltali.

Flestir sækja heimaleiki KR að meðaltali, eða 1.623, en þar á eftir koma Breiðablik (1.394) og FH (1.368).

Fæstir koma á heimaleiki ÍBV og Grindavíkur sem eru í tveimur neðstu sætum deildarinnar.

Meðaltal
KR 1623
Breiðablik 1394
FH 1368
Fylkir 1232
ÍA 1161
Stjarnan 1062
Valur 1048
Víkingur 999
HK 886
KA 833
Grindavík 615
ÍBV 507
Alls 1055
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner