Fotbolti.net
12.12.11 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Fyrrum markvörður Rauðu Stjörnunnar í Völsung (Staðfest)

Dragan Stojanovic þjálfari Völsungs.

Dragan Stojanovic þjálfari Völsungs.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Völsungur hefur samið við serbneska markvörðinn Dejan Pesic en þetta kemur fram á 640.is.

Þessi 34 ára gamli markvörður verður einnig markmannsþjálfari hjá félaginu en hann hefur mikla reynslu úr atvinnumennsku erlendis.
Pesic lék 100 leiki með FK Radnicki á árunum 1992-1997 áður en hann fór til Rauðu Stjörnunnar í Belgrad þar sem hann spilaði 110 leiki frá 1997-2002.

Eftir tveggja ára stopp hjá FK Radnicki spilaði hann í þrjú ár í Rúmeníu áður en hann hélt til Íran þar sem hann spilaði í efstu deild með Shahin Bushehr og Gol Gohar.

Pesic er nú á mála hjá Serbnesku liði og kemur til Völsunga í apríl þegar sá samningur rennur út. Unnið er nú hörðum höndum að því að klára alla formlega pappírsvinnu sem fylgir slíkum skiptum að því er fram kemur á 640.is.

Kjartan Páll Þórarinsson varði mark Völsungs lengst af á síðasta tímabili en hann sleit krossband í ágúst og ljóst er að hann verður ekki klár í slaginn fyrr en næsta sumar.

Heimild: 640.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.