12.12.11 - 11:10
Elvar Geir Magnússon
Nicolas Anelka til Shanghai Shenua (Staðfest)

Anelka verður áfram bláklæddur.

Mynd: Heimasíða Shanghai Shenua

Anelka verður áfram bláklæddur.

Mynd: Heimasíða Shanghai Shenua
Nicolas Anelka mun ganga til liðs við Shanghai Shenua í Kína en félagið hefur náð samkomulagi við Chelsea. Á meðfylgjandi mynd má sjá franska sóknarmanninn ásamt Zhou Jun, stjórnarformanni Shenua.
Koma Anelka er talin mikil lyftistöng fyrir kínverskan fótbolta en hann verður löglegur með liðinu í janúar. Þessi 32 ára leikmaður hefur ekki verið í náðinni hjá Andre Villas-Boas en hann gekk til liðs við Chelsea 2008.
Samningur Anelka við Chelsea var að renna út en talið er að hann fái um 6 milljónir punda á ári hjá kínverska félaginu.
Shenua hafnaði í 11. sæti af 16 liðum kínversku deildarinnar á síðasta tímabili en liðið stefnir á titilinn með Anelka innanborðs. Jean Tigana er orðaður við þjálfarastöðuna hjá félaginu.