13.01.12 - 07:08
Hafliði Breiðfjörð
Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir í ÍBV (Staðfest)

Bryndís Lára í leik með Breiðabliki í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Markvörðurinn Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir er gengin til liðs við ÍBV frá Breiðablik og hefur fengið leikheimild með sínu nýja félagi.
Hún hefur ekki skrifað undir samning við ÍBV ennþá en stefnir á að gera tveggja mánaða samning við félagið á næstunni.
Birna Berg Haraldsdóttir varði mark ÍBV síðasta sumar en þá var hún hjá félaginu á láni frá FH.
Ekki er enn ljóst hvort hún verði aftur í eyjum næsta sumar en hún leikur handbolta með Fram á veturna.
Bryndís Lára er tvítug og hóf meistaraflokksferil sinn árið 2006 með Ægi úr Þorlákshöfn. Hún fór þaðan til Vals þar sem hún var þar til síðasta vor þegar hún fór í Breiðablik.
Hún spilaði sjö leiki í deild og bikar með Breiðabliki í sumar.