Fotbolti.net
13.01.12 - 11:14
Magnús Már Einarsson

Darron Gibson til Everton (Staðfest)

Darron Gibson til Everton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Everton hefur keypt miðjumanninn Darron Gibson frá Manchester United en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.

Þessi 24 ára gamli Íri skrifaði undir fjögurra og hálfs árs samning hjá David Moyes og félögum í Everton.
Gibson er uppalinn hjá Manchester United en hann hefur skorað tíu mörk í 60 leikjum meðð alliði félagsins.

Gibson mun fá treyju númer fjögur hjá Everton en hann gæti leikið sinn fyrsta leik með liðinu gegn Aston Villa á morgun.

Hann er annar leikmaðurinn sem Everton fær í mánuðinum en Landon Donovan er einnig kominn til félagsins á láni frá LA Galaxy.

Heimild: Heimasíða Everton

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.