13.01.12 - 13:00
Magnús Már Einarsson
Avram Grant tekur við Partizan Belgrad (Staðfest)

Grant er afar litríkur karakter.

Mynd: Getty Images

Grant er afar litríkur karakter.

Mynd: Getty Images
Avram Grant hefur verið ráðinn þjálfari hjá serbnesku meisturunum í Partizan Belgrad.
Grant skrifaði undir eins árs samning en samkvæmt fréttum frá Serbíu mun hann frá 900 þúsund evrur fyrir samninginn sem og bónus ef liðið kemst í Meistaradeildinni.
Þessi 56 ára gamli Ísraelsmaður hefur tekið lífinu rólega og verið í fríi frá fótbolta síðan hann var rekinn frá West Ham eftir að liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni síðastliðið vor.
Grant stýrði áður Chelsea og Portsmouth en hann kom fyrrnefnda liðinu í úrslitaleik Meistaradeildarinnar árið 2008.
Grant tekur við Partizan af Aleksandar Stanojevic sem var rekinn þrátt fyrir að liðið sé með tíu stiga forskot á Rauðu Stjörnuna á toppi deildarinnar. Stanojevic fékk að taka pokann sinn eftir rifrildi við stjórn Partizan Belgrad.

Heimild: Sporting Life