13.01.12 - 17:22
Elvar Geir Magnússon
Birkir búinn að skrifa undir hjá Standard Liege (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Birkir Bjarnason skrifaði áðan undir samning við Standard Liege en frá þessu er greint á mbl.is. Samningurinn er til þriggja og hálfs árs.
Standard Liege er sem stendur í fimmta sæti í belgísku deildinni með 31 stig, níu stigum á eftir toppliði Anderlecht.
Standard Liege er sem stendur í fimmta sæti í belgísku deildinni með 31 stig, níu stigum á eftir toppliði Anderlecht.
,,Ég er virkilega ánægður með þessa niðurstöðu og tel mig vera að gera rétt með því að fara til Belgíu. Ég hafði úr nokkrum félögum að velja að fara til en mér leist best á Standard Liege,“ sagði Birkir við mbl.is.
Birkir kemur frá norska liðinu Viking en hann hefur verið í herbúðum þess síðan 2006.
Ásgeir Sigurvinsson, einn besti knattspyrnumaður Íslendinga frá upphafi, lék með Standard Liege við góðan orðstír á sínum tíma.

Heimild: Vefsíða Morgunblaðsins