13.01.12 - 21:34
Alexander Freyr Tamimi
Mark Rutgers til liðs í Víetnam (Staðfest)

Mark Rutgers í leik með Víkingum.

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Mark Rutgers, fyrrum leikmaður Víkings og KR, hefur skrifað undir samning við víetnamska fyrstu deildarliðið SQC Binh Dinh.
Þessum hollenska miðverði hafði vegnað vel á Íslandi eftir að hafa gengið til liðs við KR frá FC Utrecht í maí 2009.
Rutgers lék tvö tímabil hjá KR áður en hann gekk til liðs við Víking fyrir nákvæmlega ári síðan og stóð hann sig vel í vörn nýliðanna í Pepsi deildinni. Liðinu tókst þó ekki að halda sæti sínu í deild þeirra bestu og ákvað Hollendingurinn því að leita á önnur mið.
SQC Binh Dinh spilar í næst efstu deild í Víetnam og er liðið frá borginni Qui Nhon, en þar búa tæplega 300.000 manns. Heimavöllur liðsins, sem spilaði lengi vel í efstu deild, tekur 25.000 manns í sæti.