Man Utd skoðar það að fá Tuchel - Postecoglou fær fjármagn í sumar - Greenwood eftirstóttur á Englandi
banner
   fim 13. janúar 2022 21:43
Brynjar Ingi Erluson
Enski deildabikarinn: Xhaka sá rautt í markalausu jafntefli á Anfield
Granit Xhaka fór í heimskulega tæklingu á Diogo Jota og fékk rautt spjald fyrir
Granit Xhaka fór í heimskulega tæklingu á Diogo Jota og fékk rautt spjald fyrir
Mynd: EPA
Takumi Minamino klúðraði dauðafæri undir lok leiks
Takumi Minamino klúðraði dauðafæri undir lok leiks
Mynd: EPA
Liverpool 0 - 0 Arsenal
Rautt spjald: Granit Xhaka, Arsenal ('24)

Liverpool og Arsenal gerðu markalaust jafntefli á Anfield í fyrri leik liðanna í undanúrslitum enska deildabikarsins í kvöld en gestirnir spiluðu manni færri frá 24. mínútu.

Granit Xhaka var í byrjunarliði Arsenal en náði aðeins að endast í 24 mínútur. Andy Robertson kom með fyrirgjöf inn í teiginn á Diogo Jota sem var að sleppa í gegn en þá mætti Xhaka með löppina hátt uppi og keyrði inn í Jota. Rautt spjald og Arsenal manni færri.

Trent Alexander-Arnold skaut aukaspyrnunni í vegginn áður en boltinn barst aftur til hans, en seinni tilraunin fór rétt framhjá markinu.

Liverpool var töluvert meira með boltann í leiknum sem kom lítið á óvart en liðið var samt sem áður ekki að skapa sér neitt af viti og Arsenal í fínni stöðu.

Takumi Minamino fékk fínasta tækifæri á 67. mínútu eftir sendingu frá Curtis Jones en skot hans fór framhjá. Fyrsta færi Arsenal á markið kom á 72. mínútu. Kiernan Tierney fékk boltann, kom honum fyrir á Bukayo Saka en Alisson gerði vel í markinu.

Minamino fékk dauðafæri undir lok leiksins. Aaron Ramsdale, markvörður Arsenal, keyrði af línunni er Alex Oxlade-Chamberlain kom boltanum fyrir. Það var misskilningur í teignum og boltinn datt fyrir Minamino sem þurfti bara að setja boltann framhjá varnarmanni til að skora en skott hans fór yfir markið. Algert dauðafæri.

Bragðdaufur leikur á Anfield og engin mörk í kvöld. Lokatölur 0-0 en liðin eigast við í seinni undanúrslitaleiknum á Emirates-leikvanginum eftir viku.
Athugasemdir
banner
banner
banner