Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   fim 13. febrúar 2020 07:45
Aksentije Milisic
Kepa hissa á bekkjarsetunni - Býst við að spila gegn Man Utd
Mynd: Getty Images
Kepa Arrizabalaga, markvörður Chelsea, er steinhissa á því að Frank Lampard, stjóri Chelsea, hafi sett hann á bekkinn. Lampard valdi Willy Caballero í byrjunarliðið í jafnteflisleiknum gegn Leicester fyrir vetrarfrí.

Chelsea keypti Kepa á 72 milljónir punda árið 2018 sem gerði hann að dýrasta markverði sögunnar.

Kepa er sagður hafa verið steinhissa á því að hafa farið á bekkinn þrátt fyrir það að Lampard var búinn að vara hann við og sagði að frammistaða hans verður að batna.

Kepa býst við því að spila leikinn gegn Man Utd næstkomandi mánudag og á hann að hafa rætt við Lampard þar sem hann tilkynnti honum að hann muni leggja mikið á sig til þess að bæta sinn leik.

Chelsea byrjaði tímabilið frábærlega undir stjórn Frank Lampard en þegar líða tók á tímabilið hefur aðeins hallað undan fæti hjá Lundúnarliðinu. Chelsea er sex stigum á undan United og því um gríðarlega mikilvægan leik að ræða í næstu umferð.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner