Man Utd með mörg járn í eldinum - PSG blandar sér í baráttuna um Baleba - Tottenham vill Pulisic
   fös 13. febrúar 2026 20:11
Elvar Geir Magnússon
Sjáðu mörkin: Jón Dagur skartaði glóðarauga og skoraði tvö
Mynd: Brann
Jón Dagur Þorsteinsson skoraði tvö mörk þegar Brann vann 6-1 sigur á Odd í æfingaleik á Spáni í dag. Þetta var hans fyrsti leikur í treyju Brann en hann kom á láni frá Hertha Berlin á gluggadaginn og gildir lánssamningurinn út tímabilið.

Norska Íslendingaliðið, sem Freyr Alexandersson stýrir, leikur í næstu viku fyrri leik sinn gegn ítalska liðinu Bologna í umspili Evrópudeildarinnar og er á Spáni í æfingabúðum fyrir þann leik.

Auk Jóns Dags lék Kristall Máni Ingason sinn fyrsta leik fyrir Brann. Báðir voru þeir í byrjunarliðinu og léku 59 mínútur. Eggert Aron Guðmundsson og Sævar Atli Magnússon.

„Þetta var góð frammistaða frá öllu liðinu. Það eru mikilvægir leikir framundan og gott að fá þennan leik," sagði Jón Dagur í viðtali eftir leikinn í dag en viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að neðan.

Jón Dagur skartar vígalegu glóðarauga eftir að hafa lent í samstuði við samherja sinn á einni af sínum fyrstu æfingum með Brann.

Viðtal við Jón Dag:


Hér má sjá mörkin:


1–0: Ulrik Mathisen (14.)
2–0: Jon Dagur Thorsteinsson (26.)
2–1: Hans Christian Bonnesen (36.)
3–1: Thorsteinsson (40.)
4–1: Noah Holm (53.)
5–1: Felix Horn Myhre (69.)
6–1: Bård Finne (78.)
Athugasemdir
banner
banner