Fotbolti.net
13.03.25 - 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Evrópudeildin í dag - Landsliðsfyrirliðinn á Old Trafford

Evrópudeildin í dag - Landsliðsfyrirliðinn á Old Trafford
Canon

Mynd: EPA

Seinni leikirnir í 16-liða úrslitum Evrópudeildairnnar fara fram í kvöld. Það er spennandi leikur á Old Trafford þar sem Man Utd fær Real Sociedad í heimsókn.

Nýji landsliðsfyrirliðinn, Orri Steinn Óskarsson, spilaði um hálftíma í fyrri leiknum sem lauk með jafntefli og því er allt galopið ennþá.

Tímabilið hjá Tottenham hefur verið erfitt og liðið er í erfiðri stöðu í Evrópudeildinni eftir tap gegn AZ Alkmaar í fyrri leik liðanna í Hollandi.

Roma er með nauma forystu gegn Athletic Bilbao fyrir leik liðanna á Spáni. Lazio er með eins marks forystu geegn Vikoria Plzen og Frankfurt einnig með eins marks forystu gegn Ajax. Þá er Rangers í góðri stöðu gegn Fenerbahce.
Evrópudeildin
17:45 Lazio - Plzen (2-1)
17:45 Olympiakos - Bodo-Glimt (0-3)
17:45 Eintracht Frankfurt - Ajax (2-1)
17:45 Athletic - Roma (1-2)
20:00 Tottenham - AZ (0-1)
20:00 Rangers - Fenerbahce (3-1)
20:00 Lyon - Steaua (3-1)
20:00 Man Utd - Real Sociedad (1-1)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.