13.05.10 - 08:26
Hafliði Breiðfjörð
María Rós Arngrímsdóttir lánuð í Grindavík (Staðfest)

María Rós í leik með Aftureldingu.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

María Rós í leik með Aftureldingu.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Grindavík hefur fengið liðsstyrk nú rétt áður en keppni hefst í kvennaboltanum því María Rós Arngrímsdóttir er komin til félagsins á láni frá Val.
María Rós er varnarmaður sem hafði komið til Vals frá Fram árið 2004. Hún er tvítug á árinu en hefur fá tækifæri fengið með Val enda valinn maður í hverju rúmi þar.
Í heildina hefur hún komið inná í 6 leikjum með Val síðan hún lék sinn fyrsta meistaraflokksleik árið 2006 en fjórir þessara leikja komu síðasta sumar.
Hún var á láni hjá Aftureldingu síðari hluta sumarsins 2008 og lék þá 9 leiki.
Hún er þegar komin með leikheimild með Grindavík og gæti því leikið með gegn Þór/KA í dag.