Fotbolti.net
13.05.10 - 14:50
Magnús Már Einarsson

Helgi Óttarr í Víking Ólafsvík (Staðfest)

Helgi Óttarr í leik gegn Selfossi í fyrra.

Helgi Óttarr í leik gegn Selfossi í fyrra.

Canon

Mynd: Matthías Ægisson

Víkingur Ólafsvík er að styrkja lið sitt fyrir komandi átök í 2. deildinni. Liðið hefur fengið miðjumanninn Helga Óttarr Hafsteinsson frá Leikni í Breiðholti.
Helgi er 24 ára vinnusamur leikmaður sem einnig getur leikið í stöðu hægri bakvarðar.

Hann hefur leikið með meistaraflokki Leiknis síðan 2005 en sumarið 2006 var hann hjá Hvöt á Blönduósi þar sem hann var leikmaður ársins.

Helgi lék þrettán leiki með Leikni í 1. deildinni í fyrra og ætti að vera í leikmannahópi Víkings í fyrsta leik þeirra í 2. deildinni á laugardag.

Liðið leikur þá gegn KV á heimavelli sínum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.