13.05.10 - 19:12
Magnús Már Einarsson
Högni Helgason í Hött á láni (Staðfest)

Mynd: Austurglugginn/Gunnar

Mynd: Austurglugginn/Gunnar
Höttur hefur fengið framherjann Högna Helgason á láni frá Breiðablik en þetta kemur fram á heimasíðu fyrrnefnda liðsins.
Högni spilaði upp yngri flokkana hjá Hetti áður en hann gekk til liðs við Keflavík í öðrum flokki.
Högni, sem er tvítugur, lék samtals sjö leiki með Keflavík í efstu deild árið 2007 og 2008 áður en hann fór til Fjarðabyggðar á láni í fyrra þar sem hann skoraði samtals níu mörk í 25 leikjum.
Síðastliðið haust samdi Högni við Breiðablik en nú er hann kominn aftur á heimaslóðir á Egilsstöðum.
Höttur hefur leik í annarri deild á laugardag þegar liðið tekur á móti Aftureldingu og Högni ætti að geta spilað þann leik.

Heimild: Heimasíða Hattar