Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 13. maí 2021 21:34
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lengjudeild kvenna: Jafnt suður með sjó
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grindavík 1 - 1 Haukar
1-0 Christabel Oduro
1-1 Þórey Björk Eyþórsdóttir

Grindavík og Haukar skildu jöfn þegar liðin áttust við í Lengjudeild kvenna í kvöld.

Grindvíkingar komust yfir í fyrri hálfleiknum og var það Christabel Oduro sem skoraði markið. Staðan var 1-0 þegar flautað var til hálfleiks.

Snemma í seinni hálfleiknum jöfnuðu gestirnir úr Hafnarfirði en fleiri urðu mörkin ekki og lokatölur 1-1.

Haukar eru efstar ásamt Aftureldingu með fjögur stig. Grindavík situr í áttunda sæti deildarinnar með tvö stig.

Önnur úrslit í dag:
Lengjudeild kvenna: Öll liðin komin með stig
Athugasemdir
banner
banner
banner