13.06.10 - 16:36
Magnús Már Einarsson
Ricardo Quaresma til Besiktas (Staðfest)

Quaresma í baráttu við Aron Einar Gunnarsson.

Mynd: Getty Images

Tyrkneska félagið Besiktas hefur keypt portúgalska kantmanninn Ricardo Quaresma frá Inter.
Quaresma er fyrsti leikmaðurinn sem Besiktas fær til sín síðan Bernd Scuhster tók við liðinu í síðustu viku en talið er að kaupverðið hljóði upp á 7,3 milljónir evra.
Quaresma, sem er 26 ára, kom til Inter frá Porto á 18,6 milljónir evra árið 2008 auk þess sem Pele fór til portúgalska félagsins í skiptum.
Ekkert gekk upp hjá Quaresma á tíma hans hjá Inter og á síðasta tímabili lék hann einungis þrettán leiki í öllum keppnum. Tímabilið 2008/2009 var hann einnig á láni hjá Chelsea í nokkra mánuði.
Quaresma á 30 landsleiki að baki en hann komst ekki í portúgalska landsliðhópinn fyrir HM.

Heimild: Sporting Life